Hola mi amigos (
Áhugavert
01.10.2006 22:14:11 / Kindana

Flutt

Ég er búin að færa mig yfir á

www.kindana.blog.is -endilega tjékkið á því :lol:

kv. Kristjana


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 13:39:24 / Kindana

hahahaha!

Smá svona til að gleðja þungar sálir í prófunum ;)

Ef þetta er ekki fyndið þá veit ég ekki hvað.............

http://www.kvikmynd.is/myndband.asp?id=1117 


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 18:34:39 / Kindana

My little snowy house

Mikil lifandi skelfingar ósköp var gaman á Nýársnámskeiði :D
komin heim núna og það tók mig alveg tvo daga að jafna mig á þessari sæluvímu sem ég var í! Það sem stendur alveg uppúr er vafalaust þegar við renndum okkur nokkur niður stigann á dýnu ( það var eiginlega ekkert gaman þannig séð bara svo asnalega fyndið ), renna sér á snjódisknum hennar Jóhönnu, snjóstríð við pottafólkið, frussuleikurinn mikli sem kannski aaaaðeins og margir tóku þátt í við lítið borð, rugl lögin sem ég Anna og Anna tókum á píanóið og örugglega margt annað sem ég man ekki í bili.
    Orð mótsins var pottþétt DUSJ og nákvó.....og skandallinn var örugglega þegar við stelpurnar vorum teknar í snjóinn þó nokkrum sinnum af hálfnöktum strákum í sundskýlum.
       Snjórinn setti sitt mark á ferðinna og var miklum tíma eytt utandyra í allskonar leikjum. Mér mislukkaðist eitthvað að taka strákana í snjóinn en það bíður bara betri tíma.....veriði bara á varðbergi  ;) hohoho Nokkrir voru grafnir í snjóinn og það má kannski geta þess að meirihluti nýársnámskeiðsnefndar gróf mig eimmitt og svo skyldu þau mig eftir!!!! .....það er naumast hvað þeim þykir vænt um mig :whut: ....
    Ég hékk mest allan tímann með snillingunum mínum Jóhönnu, Önnu L og Önnu E og ég get sko sagt að ekkert jafnast á við heila helgi með þessum vitleysingum! Þær fóru alveg á kostum þarna.....og brandararnir streymdu um loftið....banananana Dusj
Draumfarir voru eitthvað skrítnar má kannski geta þess að mig dreymdi mömmu hennar Jóhönnu í úlfabúningi! Það gerist nú ekki skrítnara en þetta......svo dreymdi mig að ég hafi skotið stráka með mjólkurbyssunni minni og skyldað þá til þess að fara í franska herinn! ....vá rugl :haha:
Jæjjjja þetta er að verða komið gott
en ég verð nú samt að deila með ykkur smá golden momenti sem að mamma mín átti hérna áðan. Síminn hringdi og hún svaraði í símann öfugann og fattaði síðan ekkert afhverju ekkert heyrðist! Haha ......hló hæð mína! ;) Mamma er best!
Já allavega ég dúndra einhverri almennilegri færslu inn bráðum ;)
until then
kv. KRISSI :lol:

» 14 hafa sagt sína skoðun

10.01.2006 18:39:05 / Kindana

Bara hitt og þetta

Ég var að fatta dáldið sniðugt ef maður tekur ð-ið í orðinu maður þá kemur út maur, bara að deila þessu með ykkur

Jólafríið var æðislegt. Ég gerði svo margt skemmtilegt að ég man örugglega ekki helminginn! Ótrúlega margar minningar sem að söfnuðust í minningarbankann og ég er sko sátt. StarWars maraþon, bíóferðir, sleepover, bíltúrar, myndaflipp og mange flere.

Jæja tveir dagar búnir af skólanum og ég get ekki annað en verið ánægð. Ég er með alveg drepleiðilegan kennara í sögu og félagsfræði en annars er ég sátt. Íslensku kennarinn minn er svo fyndin týpa. Ég held að hún viti ekki af því þegar hún er fyndin. Hún segir svo skemmtilega frá og gerir allskonar skandala og við erum að tala um að ég er búin að fara í tvo tíma hjá henni. Hennti meðal annars bók í gólfið í stressi og rak sig í allt sem hægt er að reka sig í í stofunni. Stundum á ég erfitt með að hemja hláturinn, það lítur svolítið asnalega út kannski þegar ég engist útí horni og engum finnst þetta fyndið nema mér!

Lennti í svolitlu skondnu í dag. Var að labba heim úr skólanum þegar ég heyri svona flugvéladrunur í loftinu, ekkert óvenjulegt við það nema svo sé ég læðast aftan að mér stór svartur skuggi og ég tek þennan svaka bregði kipp og hoppa hæð mína af hræðslu ( hélt í alvörunni á örskotstundu að þetta væri flugvél að brotlenda ) hehe en viti menn þetta var bara byggingarkrani sem var að sveiflast yfir mig í hægð sinni. Já svei mér þá að ég sé nú ekki bara á barmi taugaáfalls! öss

jæja þetta er gott í bili held ég

bless bless


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.12.2005 18:20:58 / Kindana

Mamma mín er massi

Í gær grófum við jólatréð upp eftir langa dvöl út á altaninum. Við settum það á góðan stað inn í hlýjuna í stofunni. Svo skreyttum við það með alskonar ljósum, perlufestalengjum og ljósum. En þessi langa dvöl fór illa með litla jólatréð okkar og tréð bara hengdi haus og arma þannig að allt fallega skrautið lak af. Í Dag hringdi mamma mín í blómaval og að vörmu spori kom ungur myndarlegur maður með annað jólatré. Nú stendur það í stofunni og prísar sig sælt þar alsett skrauti ljósum og fallegheitum. Þetta er fallegasta jólatré sem ég hef séð :haha: *klapp fyrir mömmu*

Allavega smá þorláksmessukveðja hérna ;) Jólaskapið er í hávegum haft hérna heima og ég hlakka svo til þess að jólin ganga í garð með öllum sínum herlegheitum!

Gleðileg Jól allir saman

mér þykir svo vænt um ykkur öll :*

kv. JólaKristjana


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 18:43:24 / Kindana

Jahhá :0)

Jahá :D

Who is your Harry Potter love match? (for girls)
brought to you by Quizillahttp://quizilla.com">Quizilla
>

Ronald Weasley
Fun, spontaneous, and loyal wins your heart.
Completely lacking in pretention, you seek the
guy that others might overlook but who will be
totally dedicated to you alone...and will make
you laugh along the way.



.......enda draumamaðurinn! ;)

Lýst bara vel á þetta fékk reyndar Cedric Diggory í fyrstu tilraun en mér leist nú bara ekkert á það!

jæjjja tvö próf eftir .......og gleðin nálgast eins og ÓР fluga bzzz ;)

kv. Krístíní

p.s. Coldplay X&Y er að gera gott!!! :D




» 7 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 17:02:21 / Kindana

::Draumar::

Já draumar eru góðir sérstaklega ef þeir enda vel! Ég ætla að deila hérna með ykkur einum afskaplega skrítnum :
 
mig dreymdi í nótt að ég ásamt góðu föruneyti ( KSS fólk ) skelltum okkur í bíó á myndina *passion of the christ*. Þegar liðið var á myndina nenntum við ekki lengur að horfa þannig eins með alla hina í bíósalnum og fórum við þá að tala saman. Stuttu seinna vorum við rekin úr bíóinu en afþví að við höfðum keypt miða þá fengum við bara að fara á aðra mynd :D. Við komum okkur öll fyrir í einni sætaröð. Það var enginn annar í salnum nema við en svo stuttu seinna löbbuðu inn svona gotharar og mansonistar og settust beint fyrir aftan okkur. Sú sem að settist fyrir aftan mig var frekar ógnarleg og ég varð hálfhrædd bara. En svo setti hún fæturna uppá sætið sem að ég sat í og var með skónna í andlitinu á mér. Þá var mér sko nóg boðið og hallaði sætinu þannig að fæturnir á henni duttu í gólfið. Allt í einu gefur hún frá sér þetta rosa hljóð og strunsar úr sætinu og stefnir til mín. Andlitið á henni breyttist í kallinn í Saw og hún ætlaði að drepa mig. En krakkarnir mynduðu hring utan um mig og sögðu henni að fara en hún bara smeygði sér inn eins og konan í the Ring og ætlaði að drepa mig bara. Ég hljóp þá í burtu og hún á eftir mér . Svo króaði hún mig af  og þá allt í einu fattaði ég ,, hey afhverju er ég hrædd við hana, hún er miklu minni en ég" og svo lamdi ég hana í klessu en var þó dáldið hrædd um að hún myndi koma heim til mín með gengið sitt! En það gerðist ekki því að ég yfirbugaði hana. 
Ókei talandi um skrítna drauma 8| ég hef aldrei séð myndina Saw og hvað þá ljóta kallinn í henni en ég sá trailerinn. Það var sem sé nóg til þess að þessi ljóti kall smeygði sér inn í undirmeðvitundina mína! Jiiii minn. Þetta segir manni bara að áreitið sem maður fær frá sjónvarpi og bara alls staðar hefur meiri áhrif á mann stundum en manni grunaði. Allavega ég vaknaði skíthrædd í nótt eftir þetta og er þess vegna mjög þreytt núna. Öss rosalegt alveg :$
En allavega allt skemmtilegt að frétta af mér t.d.
  • komin með vinnu :haha: er að kynna vörur í búðum og svona. Rosa gaman
  • þrjú próf eitt jólapróf og tvö sjúkrapróf síðan ég var veik einhvern tíman í byrjun október! Men ef ég hefði nú bara ekki verið það þá væri ég búin á morgun!
  • Er búin að ofspila coldplay diskinn nýja núna síðustu daga. Mæli með honum.
  • Búin að læra tvö ný grip á gítar :haha: vei og get spilað þar af leiðandi fleiri lög
Jæjjja komið gott í bili. ;), er alltaf að reyna að setja inn myndir en ekkert virkar. Hjálp óskast frá einhverjum sem kann.
Allavega gangi ykkur vel í prófunum krakkar mínir. Munið! Svefninn skiptir mjög miklu máli og einstaka pásur af og til frá bókunum. God bless ya all 8)
ykkar
*Kristjana* ;)

» 15 hafa sagt sína skoðun

01.12.2005 17:28:30 / Kindana

Don´t worry be happy *Ü*

Það segir í einu lagi sem ber sama heiti og titillinn hér að ofan : In every life you get some trouble but when you worry you make it double! Gott lag og mikill sannleiksmoli þarna á ferð, believe me I know ;) Ég eimmitt stunda þann bransa mikið að fá prófkvíða og kvíða bara almennt fyrir öllu, aldeilis ekki skemmtilegt en maður lærir að takast á við það eins og svo margt annað í lífinu. Þessar áhyggjur eru aðallega hugsanir manns sjálfs sem eru að draga mann niður, ótrúlegt hvað maður getur verið ósanngjarn við sjálfann sig stundum. Í morgun var ég eimmitt að fara í próf í náttúrufræði og ég lærði til hálf þrjú í nótt útaf stressi, I know ekki sniðugt það og svo vaknaði mín bara klukkan sex í morgun og byrjaði að læra! Allan tíman var ég að hugsa, hvað ef ég nú fell og svo var ég byrjuð að hugsa hvað ég myndi nú gera ef það gerðist og blabla....en ég herti upp hugann og fór í prófið og stóð mig bara svona vel :haha: Guð er svo sannarlega góður ! VÁ

Já annars er margt búið að bera uppá daga mína undanfarið. Átti afmæli um daginn og það var nú ekki leiðinlegt! Patrý og alles, fullt af hressu fólki samgladdist mér og bara takk fyrir það krakkar! Ég og Anna Lilja erum búnar að vera duglegar og valda foreldrum okkar áhyggjum undanfarið um geðheilsu okkar hohoho, nei ég segi nú svona en við erum allavega búnar að leigja þó nokkuð oft spólu saman á stuttum tíma og fara í bíó og ég veit ekki hvað og hvað. Síðasta föstudag skelltum við okkur eimmitt á Harry Potter. Vá það er frábær mynd í alla staði og ég er nú ekki frá því að Ron Weasly sé soldið sætur :lol:, össss ;) Við fórum eimmitt á frumsýningu á myndina og það var sko komin röð 20 min áður en myndin átti að hefjast! Við sem ætluðum að vera svo sniðugar en allavega við spottuðum okkur frekar framarlega í röðinni og biðum svo óþreygjufullar eftir að fá að komast inn. Svo byrjaði troðningurinn og miðri örtröðinni þegar ég er alveg við það að komast inn þá steig einhver á fallega blómaskóinn minn :( og skórinn verður eftir frammi en ég ýtist inn í salinn af brjáluðum Harry Potter aðdáendum! Ég forðaði mér nú bara í sæti og skokkaði svo á öðrum fæti til þess að sækja litla blómaskóinn sem að bíókallinn var nú svo huggulegur að geyma fyrir mig. Eitthvað glott var nú á hans andliti þegar hann sá mig koma valhoppandi á öðrum fæti úr salnum og ekki veit ég nú afhverju :$
já jæja síðan var skellt sér á skauta á laugardeginum og það var svona líka skemmtilegt. Ég og Anna þutum þarna um svellið alveg eins og atvinnumenn *hóst* eða það er að segja hún ekki ég. Ég þori nú næstum því að veðja að Anna æfir á skauta í leyni! Svindlarinn sá.... við sem ætluðum að standa saman í lélegheitum. Nei grín ég er nú bara afar stolt af henni ;) Love you darlin.... ! Hmmm ég var ekki alveg að ná tökum á þessu strax en ég hélt ótrauð áfram, meðan flestir fóru sjö hringi hripaðist ég áfram einn ! Aldeilis skemmtilegt það :haha: Síðan var auðvitað skellt sér í ropukeppni með Nonna jájá hehe. Snillingur snillinganna þar á ferð ...... hún vann auðvitað eins og alltaf en einn daginn með góðri æfingu mun mér takast að ropa eins og strákur tagg ferir!
Jájá þetta fer nú að verða gott hér en verð nú samt að deila því með ykkur að Anna keyrði á moggaböggla um daginn. Hahaha það var fyndið! Ég hélt ég yrði nú ekki eldri og hún ætlaði nú bara að keyra burt af vettvangi.......Anna ég vissi sko að þú værir ekki sátt við vinnutímann og erfiðið sem fylgir þessari skyldu, en var það nauðsylegt að keyra á vesalings moggann ? ;)
Jæjjja ég kveð í bili......alltof langt össss !
en einn brandari fyrir ykkur í lokin :
Allir krakkarnir hlupu útúr kirkjunni þegar kviknaði í nema Hermann, það var verið að ferm´ann ......hohohoho :D
Hasta luego amigos 8)

» 16 hafa sagt sína skoðun

17.11.2005 18:09:23 / Kindana

Alene hjemme (",)

ó boy.....:S
Vá ég er ýkt hress á því maður
Ég eins viltaus og ég gerist frestaði því að lesa Animal Farm þar til hálf tíu í gærkvöldi. Þá dembdi ég mér í bókina eins og vitleysingur og var að lesa til hálf tvö og sofnaði ekki fyrr en klukkan tvö. Nú síðan vekur pabbi mig í nótt klukkan fimm, og mér brá líka svona mikið að ég datt næstum því á gólfið. En þau (familian) skelltu sér nefnilega til Spánar í morgun. Jájá en gaman.....og ég sit hérna hress heima að læra undir próf. Allavega ég sofnaði síðan ekkert eftir að þau fóru, þannig að ég fékk tótal 3 tíma svefn í nótt og er líka svona svakalega hress á því !:$
Ég fékk þvílíkan svefngalsa í heilbrigðisfræði í dag og jiii minn mér fannst allt fyndið. Þetta umhverfi kitlar svo hláturtaugarnar mínar að það er ógeðslega fyndið! Stelpurnar/konurnar sem eru með mér í hóp eru svo fyndnar og kennarinn alveg að brillera með sína takta!....eitt atvik í dag fékk mig til þess að bókstaflega gráta úr hlátri...þannig var mál með vexti að ein stelpan sagði við kennarann ,, Já Rósa mín við viljum sko fá 10 fyrir þetta verkefni!" og þá sagði vinkona hennar sem er svo fyndin að hún fattar það ekki held ég! ,, Já smá respect skiluru.....fockface" hahahaha vá.....*grát* :haha: Kennaranum fannst þetta bara fyndið og ég sko hló úr mér lifrina....hehe.. æ vá ég er alveg eftir mig hérna.....össs.
Hey og ekki bætti nú úr skák að tíminn á eftir var með helminginum af þessu snilldar fólki í kynfræðslu......þar sem við hlógum enn og aftur af glans penis og svoddan ;)
Já alltaf gaman í skólanum :D
En já annars er ég ekki frá því að það er dáldið spooky að vera alene hjemme....en Pjakkur er duglegur að passa upp á mig...og fullvissar mig að það sé ekki brjálaður trúður í hinum ýmsu skúmaskotum hér í min hemmepå
Vá það er allt að gerast um helgina, görlís á morgun þar sem ég fæ 4 eldhressar veninder til að gista hjá mér og það verður lítið sparað á bröndurum og hressileika. Svo er KSS fundur á laugardaginn og smá ammælispartý hos mig eftirá....sem minnir mig á það að ég þarf að baka, taka til 8| og taka niður *blóm* fermingarmyndina mína :lol:
já annars hef ég ekki mikið meira að segja í þetta skiptið annað en það að Ich liber dich alle sammen og ég hvet ykkur öll saman til þess að taka væna sveiflu á dansgólfinu heima hjá ykkur svona í amstri dagsins, það hressir sko aldeilis upp á hversdagsleikann ;)
Jæjjja ég er farin á leiklistaræfingu
Later :haha:

» 9 hafa sagt sína skoðun

13.11.2005 20:05:20 / Kindana

sama og síðast ;)

Hehehe ég nú er það opinbert ég og tölvur eigum alls ekki saman ;)
En svo ég víki nú að skemmtilegri málefnum og kannski málefnunum þá skellti mín sér bara á Hvammstanga um helgina. Það var líka bara svona hresst. Fór með fögru föruneyti, 17 samtals og djömmuðum við allsvakalega þarna á bæ. Fórum í poppmessu þar sem allir þrír íbúarnir mættu hehe. Svo skellti fólkið sér í sund en ég var krýnd myndavélameistarinn og tók nokkrar vel valdar myndir á 3 myndavélar og stóð mig bara svona sæmilega í því hlutverki. Svo var skellt sér í kirkju sem er aðeins fyrir utan svæðið og þar voru auðvitar engvir ljósastaurar eða neitt. Og það gerist ekki draugalegra en það að við þurftum að labba í gegnum kirkjugarð til að komast í kirkjuna. Síðan eftir nettan taugatrylling þarna og hlustun á kyrrðina þá komum við okkur fyrir í félagsheimilinu. Þar var m.a. horft á Airplane (steikt mynd! ), skellt sér í lélegan tölvuleik hehe sem að ég vann :haha: og diskótek að hætti Hvammstangara. Jón Krisinn fór þar fremstur í flokki með ýmis framandi danspor og tónlistin var nú ekki af verri endanum! Barnabros :haha: Já krakkar mínir þetta var steikt  en ákvaflega gaman. Svo var skellt sér í háttinn um 7 leytið og vaknaði ég spræk og fyrst allra. Morgunhaninn ég! Svo borðuðum við frosnar og kaldar pizzur í morgenmad og tjúttuðum svo heim á leið. Magnað skal ég  segja ykkur ;) hehe mér er nú bara hlátur í huga þegar ég hugsa til baka til ferðarinnar. Gaman gaman.

Jæjja svo var KSS fundur um kvöldið sem var örlítið öðruvísi en venjulega en bara gaman. Eftir fundinn hjálpuðum við nokkur síðan fólkinu sem að stóðu fyrir Jól í skókassa verkefninu. Þau voru búin að vera þarna alla helgina að taka við pökkum, athuga ofaní þá og merkja þá og setja þá svo útí gám. Þetta virðist nú ekkert svaka verk en það er annað þegar um 2600 pakka er að ræða. Vá þetta var magnað. Ég get rétt svo ímyndað mér svipinn á börnunum sem að fá þessa pakka í hendurnar. Ég get ekki annað en verið bara stolt af Íslendingunum sem að tóku sig til og gerðu þetta góðverk :D

En jæjjja nú ætla ég að snúa mér að fyrirlestrinum góða ;) Later

E.s. Jesaja 43.4 ........endilega lesið þetta vers. Það er í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana. ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.11.2005 23:16:49 / Kindana

Klukk 2

Já ég var víst klukkuð af  Tinna mínum. Þetta er nú aldeilis eltingarleikurinn en jæjjja nú skal láta hendur standa framúr ermum og hefjast handa....ööö já !
Núverandi tími: 22:58
Núverandi föt: Undirföt, bleikappelsínugulur hlýrabolur, grænn blómabolur, grænar buxur og brún peysa
Núverandi skap: Bara svona líka ljómandi hrezz :D en svíður alveg heiftarlega í varirnar eftir appelsínuna!!! öss
Núverandi hár: Brjálað og ýft í allar áttir tagg ! .....
Núverandi pirringur: tja ekki neitt eiginlega nema þá kannski strætókerfið en það er gömul tugga
Hlutur sem þú ættir að vera að gera: lesa bók måske ( verð að gera meira af því)
Núverandi skartgripir: 3 hringir, hálsmen, og armband sem ég köpte á römblunni
Núverandi löngun: ís :$
Núverandi ósk: bara að heimurinn verði betri!
Núverandi farði: maskari.....ekkert stórtæk í þessum bransa sko!
Núverandi eftirsjá: ekkert merkilegt!
Núverandi vonbrigði: að orðið banani sé ekki bananani!!! eins með anananas
Núverandi skemmtun: mismælgni mín og fleira fólks í heilbrigðisfr. og Pjakkur sem kann næstum því að gera high five !!!! *gússí*
Núverandi ást: Jón Kristinn!........neihhh grín....bara svona smá spaug til að ýta undir sögusagnir á stjórnarfundum!!! *hóst*
Núverandi staður: bara hjemmepå
Núverandi bók: engin 8| en bráðlega mun það vera Narniu sögurnar....sjölógían eða eitthvað heh
Núverandi bíómynd: The legend of Zorro ......hehe spees
Núverandi íþrótt: klárlega curling
Núverandi tónlist: Third day annars var rokkið í þættinum Rockstar:INXS í gær alveg hörkugott verð ég að segja!
Núverandi lag á heilanum: "Flottur jakki tvít tvít tvít........" flott lag 8)
Núverandi blótsyrði: Sjitt.....annars á maður ekkert að blóta! 8|
Núverandi msn manneskjur: er ekki á msn
Núverandi desktopmynd: kúlmynd sem ég tók af Pjakki, mjög listræn
Núverandi ætlanir fyrir kvöldið: Sofa .....það lætur afskaplega vel í eyrum þessa stundina

Jæjjjjja þá er það búið
Ég klukka Önnu Lilju, Hildi Björg og Önnu Elísu ;) .......kærlig hilsen


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.11.2005 17:54:56 / Kindana

Já svei ;0)

Loving the Lord is what I do, and if loving him is wrong I don´t want to be right!

Sælar 8)
Vá mikið búið að vera að ske síðasliðnu daga svo ég tala nú ekki bara um síðustu helgi.
Hún var svo sannarlega viðburðarrík og falleg! Já ég segi falleg afþví að ég elska mikinn snjó, hann minnir mig svo mikið á jólin og það lék um mig smá jólafiðringur þegar ég steig út á sumarskónum á leið í kristkirkjuna. Það var skemmtun í lagi. Ég datt í snjóinn þegar samkomu laug og það fannst mér einnig afar fallegt. Mjög smooth dett hjá mér og það fannst Önnu líka ;) hehe og fleiri viðstöddum. Á laugardeginum var ekki bara snjórinn fallegur heldur hele KSS fólkið! Allir mættu prúðbúnir á svokallað galakvöld! Mikið ósköp var þetta fallegt allt saman. Rauður dregill, kertaljós og hele klappen. Tónlistin gekk vel og svo var dansað af sér fæturna eftirá! Vá hvað það var gaman mæli einstaklega með því. Strákarnir voru alveg framúrskarandi dansarar verð ég nú bara að segja ! Þetta var magnað! Sunnudagurinn var bara eintómur lærdómur og svo barnastarfið sem gekk vonum framar :haha:
Í vikunni er ég síðan búin að vera að læra helling fyrir próf og var í einu slíku í dag þar sem mér gekk ekki sem skyldi. Skrítið samt að ég er ekkert svo óánægð með það! Ég nefnilega fékk engan prófkvíða og þar með flúði ég ekki þegar á hólminn var komið eins og hefur gerst áður. Guð er svo sannarlega góður, hann gekk með mér í gegnum þetta og ég sönglaði í sífellu " ég skal, ég get, ég vil"
Já gaman að segja frá því að um daginn þá sat ég í makindum mínum hér í eldhúsinu að læra undir próf. Grunlaus og niðursokkin sökkti ég mér ofan í bókina og lét mér allt annað framhjá fara. Nema svo allt í einu klessir eitthvað stórt, skrítið og svart  sig upp við gluggann ! Ég fékk vægast sagt nett taugaáfall og hélt að ég yrði ekki eldir. Fyrsta sem ég hugsaði var trúður!, ekki veit ég nú afhverju :$ en svo eftir stutt moment með sjálfri mér þá áttaði ég mig á því að þetta var ruslapoki! Össs ...
Heyrðu svo er skandall vikunnar þegar ég mismælti mig svo allhrapalega í heilbrigðisfræði þegar ég var að halda stuttan fyrirlestur um smokkinn ! Jiii ég ætla ekki að hafa það eftir, ég roðnaði niðrí tær og svo sprakk ég auðvitað úr hlátri aldrei þessu vant. Ji minn það kom nú ekki vel út, ég lét eins og þrettán ára óþroskaður einstaklingur sem var að heyra í fyrsta sinn um getnaðarvarnir. !!!!!8|:lol:
Já jæjja komið gott í bili
Ég kveð með gleði í hjarta og spenningi fyrir juleferiet ;)
kærlig hilsen
Kristjana ;)
 

» 8 hafa sagt sína skoðun

06.06.2005 18:57:44 / Kindana

bæjjó *Ü*

Jæja þá er komið að því. Síðasta færslan fyrir sumarið. Núna tekur sumarblíðan í vindáshlíð við :D Ég er búin að galla mig upp fyrir brúðkaupið og alles og hún María ætlar síðan að hjálpa mér að leggja lokahönd á lagið...thank you darling 8)
Síðustu dagar eru búnir að vera svolítið erfiðir hjá mér þar sem Amma mín var að deyja í dag. Hún barðist við sjúkdóminn, sem uppgötvaðist á fyrir einni og hálfri viku, alveg eins og hetja ! Amma er svo sterk manneskja og greind og falleg og you name it! Ég á eftir að sakna hennar afar sárt. Ég elskaði hana svo mikið og geri enn!
Hún var svo falleg í dag og svo friðsæl á svipinn. Ég veit að núna er hún á betri stað og Guð passar hana vel! Ég las eimmitt fyrir hana á dánarbeðinu sálm 23.....það átti vel við fannst mér.
Jæja með þessum orðum kveð ég ykkur mine elskelige venner og hver veit nema ein og ein færsla komi í sumar!
kærlig hilsen
Kristjana ;)


» 74 hafa sagt sína skoðun

23.01.2005 13:15:25 / Kindana

Ammæli (",)

Hæhæ .......alllir
Í gær var merkisdagur og eiginlega enginn vissi um það en KSS átti 59 ára afmæli í gær ( að mig minnir) ....:$ og það hefði nú verið gaman að halda smá veislu en það verður þá bara gert á næsta afmæli sem verður STÓR-afmæli vúhúú......:lol:
KSS fundurinn í gær heppnaðist alveg ótrúlega vel og ég held barasta að allir hafi verið rosalega ánægðir með hann. Allavega var ég rosalega ánægð. Tónlistin var mjöög fín og skemmtileg í gær. Ræðan var líka fín og massa skemmtiatriði..
Jæja núna er ég að fara í lítið sálfræðipróf á morgun og ég held að það eigi eftir að heppnast ágætlega. Mér finnst allavega rosalega gaman að læra sálfræðina og það skiptir mjög miklu málið fyrir minnið í mér 8)
Ég er búin að hlusta afturábak og áfram á tvö lög um helgina sem eru hreint út sagt ótrúlega flott lög og ég fæ alveg fiðring þegar ég hlusta á þau.......þetta eru sem sagt Uninvited með Alanis Morissette og Angel með Sarah McLachlan. Það er geðveikt gaman að reyna að radda þau :P og Alanis hún syngur svo sérstaklega ......svona öðruvísi og hefur líka alveg magnaða rödd ..........ég mæli með því að þið hlustið á þessi lög .......
Jæja kannski að maður fari nú að huga að lærdómnum og kíki síðan á samkomu á eftir .......hmmm:P:P......það væri gaman, þær eru geðveikt fínar samkomurnar .....mæli með þeim líka ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3